Jæja loksins smá skrift frá mér .... nú er ég farin að vinna aftur í HR þeir hringdu og báðu mig að koma aftur svo ég lét tilleiðast og er ekkert að sjá eftir því sko nema...... það er svooo erfitt að vakna á morgnana kl 6:45 gott fólk púff, ég sem er búin að sofa út síðan í apríl í algjörum prinsessu heimi

nú ss er ég komin í kaldann veruleikann á ný og finnst það fínt

Nú svo er hann Halli minn að verða 30 á laugardaginn og þá verður svaka húllumhæ á heimilinu hann er búinn að bjóða fullt af fólki vonandi komast allir fyrir

Svo er kella búin að taka mataræðið í gegn og er búin að fá silju hennar Sonju lánaða í göngutúra á geldinganes svaka næs svo lífið leikur við mig þessa dagana,,,, Svo erum við tutildúfurnar að spá í að skella okkur til kúbu í des en verðum komin heim fyrir jól og erum líka að spá í að fá okkur hund sem veldur ekki ofnæmi svo það er allt bjart framundan hjá mér...... já má nú ekki gleyma að hann Andri minn varð bikarmeistari í 2 deild hjá ÍR svaka flott til hamingju drengurinn minn og hann var að byrja í FB fyrst ætlar hann í upprifjun svo í rafvirkjann :þ gæti ekki verið stoltari... Nú svo styttist í ammælið mitt gott fólk verð 35 svo byrjið að safna fyrir gjöfunum heheheheheh..
Jæja ætla að fara dekra við manninn minn smell you all later......